Share This
Starfsfólk
Í Molanum starfar einvala lið öðlinga, lífskúnstnera og merkikerta. Það er þeirra verk að halda poolborðinu hreinu og kaffinu fljótandi.
Fremstur í flokki fer útivistar-, útiveru- og útigangsmaðurinn Andri Lefever. Andri er hálfur ameríkani, fjórðungur íslendingur, einn áttundi karlmaður og 100% leiðtogi. Án hans væri enginn Moli. Án Molans væri enginn Kópavogur. Án Kópavogs væri engin Smáralind. Og án Smáralindarinnar væri enginn Andri. The circle of Life.
andri(hjá)molinn.is
————————————
Næst er það Íris, a.k.a. Iris the Virus. Hún heldur sér í formi með 70% konsúm súkkulaði og spínatkokteil. Ef hún er ekki í ræktinni þá er hún í Molanum að predika heilsusamlegt líferni. Sumir segja að hún hafi fundið upp Müllers-æfingarnar, en það er óstaðfest.
iris(hjá)molinn.is
————————————
Hjá Molanum starfar maður sem er úr járni, og lætur ekki á sjá þótt gamanið kárni… og… er stundum… alveg… fárni? Nei ok, það er ekki orð. Enívei, hann heitir Árni og tengiliður Molans við íþróttir, heilsu, list, gott mataræði, og svona mætti lengi telja. Hann tekur 300 í bekk og getur lyft lyftara. Hann er allur af vilja gerður, enda er hjartað hans jafn stórt og upphandleggsvöðvinn hans.
arnithor(hjá)molinn.is
————————————
Einu sinni var birtur listi yfir efnilegustu ungu söngkonur íslands með brún augu og liðað brúnt hár með nafn sem rímar við ‘galborg’. Númer 3 á þeim lista var einn af starfsmönnum Molans, engin önnur en hún Valborg. Hún syngur eins og nýútungaður kólibrífugl, dansar eins og tígur og getur nefnt allar sýslur Íslands í öfugri stafrófsröð. Hún er listaspíra Molans og er alltaf geim í einhvern kreatívan gjörning.
valborg(hjá)molinn.is
————————————
“Sigrún er þú fórst mér frá, mér fannst sem birtan hyrfi þá…” söng Villi Vill á sínum tíma. Okkur líður eins hér hjá Molanum enda óskum við þess að hún Sigrún verði hjá okkur í mörg mörg ár. Hún er með heitasta slúðrið, öflugan hægri krók og bros sem bræðir. Hún er líka sokkin í markaðsfræðina og er örugglega með góð tips fyrir hvern þann sem vill læra að selja dúkkusafnið sitt eða koma á laggirnar nýju gardínuhönnunarfyrirtæki.
sigrun(hjá)molinn.is
————————————
Að lokum er það svo sjentílmaðurinn og heimsborgarinn Birgir Már. Kallaður Biggi af vinum sínum, Bronco á hinum ýmsu spjallvefum og ‘fjandans svindlari’ af afa sínum. Birgir er okkar maður þegar kemur að tölvu- og kynningamálum, heimasíðunni, grafískri hönnun og muffins. Ef hann er ekki að hanna einhverja snilld þá er hann að tengja snúrur eða að skít-tapa í FIFA2012.
birgir(hjá)molinn.is




