Share This
Um Molann
Molinn – ungmennahús er fyrir ungt fólk á aldrinum 16 ára og upp úr. Hér er alltaf kósý stemning og þægilegt að kíkja í pool eða fússball, horfa á uppáhalds þættina í sjónvarpinu, tefla, grípa í gítarinn eða bara læra og spjalla.
Molinn er félagslegur staður sem býður upp á jákvætt og vímulaust umhverfi og afþreyingu. Í húsinu er þráðlaus aðgangur að netinu og gestir geta fengið afnot af tölvum. Molakaffi er nafnið á kaffihúsinu og þar er hægt að kaupa killergott latté og expressó, te, sælgæti og gos.
Hefur þú áhuga á að halda tónleika? Í Molanum er frábær aðstaða til tónleikahalds, flottur tækjabúnaður og tækniþekking. Hafðu samband við okkur í síma 570-1646 eða á netfangið molinn@molinn.is
Íþróttaviðburðir og annað sem áhugi er á er sýnt á breiðtjaldi en auk þess er aðstaða fyrir margs konar menningarviðburði eins og LAN-mót, ljóðalestur, gjörninga, málþing, LARP (live-action-role-playing) og hlutverkaspil, og annað skemmtilegt sem fólki dettur í hug.
Alltaf er hægt að fá ráðgjöf og hjálp í tengslum við atvinnu- og námsleit innanlands og utan. Einnig aðstoðar starfsfólk Molans við að koma á tengslum við fagaðila ef þess er óskað.
Verðandi mæður undir tvítugu eru boðnar velkomnar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband í síma 570-1646, eða á netfangið molinn@molinn.is




