Starfsfólk
Í Molanum eru fimm æðislegir starfsmenn. Þau koma hvaðanæva úr stéttum samfélagsins og leggja sitt að mörkum við að gera Molann að betri stað til að vera.
Fyrst kynnum við til leiks okkar óbiluga leiðtoga, Andra Þór. Með bandarískt blóð í æðum, þó ekki kransæðastífluna sem fylgir, stýrir hann rekstri Molans af fagmennsku og alúð. Hann er með krullað hár og er eigandi fyndnustu útskriftarmyndar heims. Áhugamál hans eru Molinn, að fá sér frappucino í Molanum og að hanga fyrir utan Molann þegar það er lokað.
Þokkadísin Sigga kemur svo sterk inn af hægri kantinum. Hún er fædd og uppalin í Kópavogi og af hansakaupmönnum komin. Listir og föndur eru hennar sérgrein og gerir það enginn betur. Hún stefnir á titilinn ‘Hannyrðakona Kópavogs 2012′ og er í stífri æfingu þangað til. Hvetjum hana áfram með því að mæta í Molann og gefa henni high five.
Íris Björk, stundum kölluð ‘Iris the Virus’, er heilsufrík hússins. Hún stundar yfir 34 klukkutíma af líkamsrækt og jóga á mánuði og drekkur einungis sítrónu Topp. Hún á það til samt að vera nammigrís og er það í besta lagi því hún kemur alltaf með nóg nammi fyrir alla. Henni er samt krónískt kalt og þurfum við því að vera dugleg við að fylla húsið í vetur til þess að fá inn sem mestan líkamshita.
Næst viljum við bjóða velkominn á svið, sífellt nýkominn af tónleikum angandi eins og Lemmy, maðurinn með gylltu lokkana, Bjarni… Egill… ÖGMUNDSSON. Hann er maðurinn til að tala við viljir þú halda tónleika, nota sviðið eða fá góð ráð við halda takti, hvort sem er á trommunum eða í lífinu sjálfu. Eins og Eddie Van Halen sagði við hann vorið ‘89: “Bjarni, life is a drum, either beat it, or eat it.” Það skilur enginn Eddie Van Halen.
Síðast en ekki síst er það nýliðinn í hópnum, grafíski hönnuðurinn og lífskúnstnerinn, Birgir Már Sigurðsson. Það er hans að kynna starfið innan Molans, ljósmynda fólk í Pyttinum og senda ykkur spam póst. Hann er sjentílmaður mikill og heimsborgari svo um munar en þykir einnig mikið nörd. Hann spilar tölvuleiki grimmt, veit allt um kvikmyndir og horfir mikið á vísíndaskáldskap. Ef hann er ekki að rausa um málstað kommúnista þá er hann að öllum líkindum að tjá sig um síðasta þáttinn af Stargate: Universe. Nerd-alert! Nei djók, hann er æði.

