Share This

Skapandi sumarstörf

Lumarðu á góðri hugmynd? Hefurðu áhuga á leiklist, tónlist eða ritlist? Langar þig að skapa eitthvað alveg nýtt og hafa áhrif á bæjarfélagið þitt? Þá átt þú erindi í Skapandi sumarstörf!

Á sumrin býðst hópum og einstaklingum að starfa við skapandi verkefni í Kópavogi. Um er að ræða starf í allt að átta vikur í júní og júlí. Skriflegri umsókn þarf að skila í Molann en auk þess þarf að sækja um rafrænt á vef Kópavogsbæjar. Umsóknarfrestur er auglýstur á hverju ári, vertu með!

Umsóknum um Skapandi sumarstörf skal skila skriflega í Molann, Hábraut 2, 200 Kópavogi, merktum „Skapandi sumarstörf“ en auk þess þarf að sækja um rafrænt á www.kopavogur.is.