Tags
Related Posts
Share This
Desember 2011
Jólamánuðurinn er ekkert nema yndislegur í svona snjó og frosti, og skal goðum, guðum og öðrum góðum vættum þakkað vel og innilega. Námsverið kláraðist á föstudaginn og lunginn af menntskælingum að ljúka jólaprófunum svo það má skella á með smákökubyl og kósýljósum.
Niðurtalning er hafin í nýtt ártal en við skulum ekki fara of geyst því nú hefst jóladagskráin fyrir alvöru í Molanum. Ekki láta þér leiðast, það er nóg um að vera:
Fimmtudagur 15. desember
Street Art sýning hefst kl. 20. Stensl, sprey, pólitík og allur fjárinn. Ögrandi sölusýning með flottum verkum! Kynntu þér hvað gestirnir okkar hafa verið að gera, hægt að sjá myndir á Facebook.
Föstudagur 16. desember
Leikhúsförðun kl. 14-16. Seinni tíminn á framhaldsnámskeiðinu hjá Nenítu. Munið að mæta með dót og gervi :)
Tónleikar kl. 19.30. Frábærar hljómsveitir sem stíga á stokk og hrista upp í þér fyrir jólin! Metall, dauðametall, rokk og pönk. Aldurstakmark 16 ár og ókeypis inn.
Þriðjudagur 20. desember
Nú hefst tjillið og jólaundirbúningurinn enda aðeins nokkrir dagar í hátíðina.
Jólakonfektgerð kl. 16. Súkkulaði er snilldar uppfinning og fer best vel bráðið í munni.
Jólabíó kl. 20. Griswold-fjölskyldan bætir, hressir og jólakætir í hinni sígildu Christmas Vacation.
Miðvikudagur 21. desember
Allir eru í jólaskapi og aðföng eftir því :) Jólabíó um kvöldið!
Jólaföndur, jólakort, jólagjafainnpökkun og jólastensl kl. 14-18.
Kl. 19.00 LOTR: Fellowship of the Ring
Fimmtudagur 22. desember
Áframhaldandi jólastúss fyrir þá sem eru á síðustu stundu. Kakó og rjómi og mandarínur og piparkökur og seinni tvær myndirnar í tríólógíunni frá Peter Jackson.
Kl. 14.00 LOTR: Two Towers
Kl. 18.00 LOTR: Return of the King
Föstudagur 23. desember.
Lokað á Þorláksmessu. Gleðilega skötu öllsömul :*
Þriðjudagur 27. desember
Opið frá kl. 10-16
Miðvikudagur 28. desember
Opið frá kl. 10-16





