Tags
Related Posts
Share This
Ungaló/U20
Ungaló eða U20 er meðgöngugrúppa fyrir þær sem eru yngri 20 ára. Aðaltilgangurinn er að hittast reglulega, spjalla, fá stuðning, fræðast og gera eitthvað skemmtilegt í góðum félagsskap. Molinn tekur vel á móti öllum með góðri aðstöðu, hrikalega kósý stemningu og agalega næs fólki.
Fræðsla verður um þá þjónustu sem er í boði fyrir konur fyrir og eftir fæðingu og upplýsingar um sniðug námskeið sem hægt er að sækja. Ljósmæður kíkja einnig í heimsókn og svara spurningum um allt á milli himins og jarðar.
Fyrir frekari upplýsingar um Ungaló hafðu þá endilega samband við Írisi, netfangið er iris@molinn.is og gsm. 848-7672.
Ekki hika við að adda Molanum á Facebook, þar er hægt að sjá myndir og fylgjast með hvað er í gangi hverju sinni.
Ást og friður!





