Tags

Related Posts

Share This

Opin vinnustofa


Opin vinnustofa hefst í Molanum næstkomandi föstudag kl. 16.00 þar sem gamlir hlutir fá nýtt líf.

Ferðatöskur, hillur, stólar, púðar, tuskudýr, litil borð, hillur, náttborð, kollar…

Planið er að mæta og gera upp húsgögn og muni sem þarfnast yfirhalningar og viðhalds. Við ætlum að koma okkur fyrir og mæta með húsgögn eða muni sem við viljum gefa nýtt útlit. Svo verður pússað, sparslað, málað, neglt og jafnvel bólstrað, allt eftir behag. Við munum nýta okkur vefsíður eins og designsponge og blueroom til að fá hugmyndir og leiðbeiningar, og jafnvel fá gesti í heimsókn til að sýna okkur handtökin.

Allir mæta með þau verkfæri/málningu sem þarf að nota, Molinn útvegar aðstöðuna, kaffið og tónlistina :) Mæting er frjáls og fólk getur mætt og unnið þegar það vill með tilliti til dagskrár Molans hverju sinni. Við ætlum að starta þessu á föstudaginn 4. nóvember kl. 16.

Fólk getur svo alltaf mælt sér mót, ákveðið að hittast reglulega eða á öðrum tímum ef svo ber undir.

Allir eru velkomnir, þetta kostar ekkert nema tíma og vinnu.. og kannski smá pjééning, en aðallega tíma og vinnu. Komdu og gerðu eitthvað fallegt fyrir jólin!