Tags
Related Posts
Share This
Viltu sýna á Safnanótt 2012?

Myndlist. Sjónlist. Ritlist. Vegglist. Handverk. Höggmyndalist. Matarlist. Götulist. Vantar þína list vettvang? Viltu koma þér og verkunum þínum á framfæri? Molinn ætlar að vera með á Safnanótt 2012 og auglýsir nú eftir áhugasömu listafólki. Þetta er frábært tækifæri fyrir ungar og upprennandi listaspírur til að láta til sín taka. Veröldin er þín ostra – að minnsta kosti eina nótt í febrúar :)
Áhugasamir hafi samband við Molann í síma 570-1646 eða kíki í kaffi og spjall. Gott að koma með sýnishorn af verkum eða vera með myndir sem hægt er að skoða.




