Tags

Related Posts

Share This

Átt þú gömul húsgögn?


Molinn auglýsir eftir gömlum húsgögnum gefins fyrir verkefni! Í nóvember og desember munum við bretta upp ermar og reyna fyrir okkur í aðhlynningu gamalla og úr-sér-genginna húsgagna.

Við erum að sanka að okkur stólum, kollum, litlum borðum, hillum, útsaumuðum púðum og fleiru sem við getum dundað okkur við að gera upp, mála og dyttað að. Æskilegast er að hlutirnir séu ekki of stórir þar sem við erum að prufa okkur áfram. Gamalt verður nýtt með smá málningu, pússi og viðgerð.

Hægt er að koma með húsgögnin til okkar þri-fim frá kl. 14-23 á kvöldin. Frekari upplýsingar í síma 570-1646.