Tags

Related Posts

Share This

Halloweek…

Við eigum öll okkar skuggahliðar og það er ekkert betra en að láta undan hryllingnum í vetrarmyrkri og hörkum. Við tökum kanann á þetta og höldum upp á Halloweek, eða Hrekkjavökuviku.

Þriðjudagur
Við förum rólega af stað og þeir sem vilja geta komið og prufað að skera út graskersluktir. Klukkan 18 er Street Art námskeiðið góða (collage og stenslar og pælingar). Hrolllurinn byrjar svo um áttaleytið, sýnd verður eðalræma og naslað á ofnbökuðu nachos-i.

Miðvikudagur
Halloween-chill.

Fimmtudagur
Street Art námskeið kl. 18. Grasker stungin, skorin, slæsuð á listrænan hátt kl. 20.

Föstudagur
Vikunni er slúttað með Gore-pizzugjörningi, spilum og bíói. Af hverju að fá sér pepp og svepp þegar þú getur gætt þér á nýrum og blóðugu hjarta?