Tags

Related Posts

Share This

Fjallaföstudagar!!

Fjallaföstudagar í Molanum

Ungmennum bæjarins býðst að taka þátt í hollri og góðri afþreyingu á föstudögum í júní. Um er að ræða 2-4 tíma langar fjallgöngur í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Fyrir hópnum fer menntaður gönguleiðsögumaður ásamt starfsfólki Molans –ungmennahúss.

Atvinnumöguleikum ungs fólks hefur fækkað mjög undanfarin ár. Kópavogsbær hefur reynt að stemma stigu við þessu með því að fjölga ráðningum í sumarstörf bæjarins. Nú er það svo að flestir umsækjendur fá starf en algengt er að búið sé að stytta vinnuvikuna. Þar að auki fá 17 ára ungmenni aðeins vinnu í u.þ.b. fimm vikur.

Fjallaföstudagar Molans eru hollur og góður valmöguleiki og það kostar ekkert að vera með.

Brottför frá Molanum klukkan 10 á föstudagsmorgnum. Fólk þarf að vera klætt í takt við aðstæður og sæmilega skóað. Nauðsynlegt að hafa með sér bita að narta í og vatn að drekka.

Sameinast verður í bíla í Molanum –mættu á bíl ef þú getur!

Byrjað verður á þremur föstudögum í júní, þann 3. 10. og 24.

Sendið póst á molinn@molinn.is fyrir nánari upplýsingar.