Tags
Related Posts
Share This
Apríl í Molanum
Það er eitthvað fyrir alla í Molanum í Apríl. Til dæmis:
Á ÞRIÐJUDÖGUM ER
MOLAKAFFI+SPILAKVÖLD
Í upphafi hverrar viku í apríl ætlum við að taka því rólega yfir daginn með kaffi á könnunni og afslappaðri stemningu. Tilvalið að taka með sér heimavinnuna eða góða bók.
Um kvöldið tökum við svo fram spilin og skemmtum okkur með Fimbulfambi, Monopoly, Varúlf og fleiri góðum.
Á MIÐVIKUDÖGUM ER
SJÓNVARPSSUKK
Sökum þess að við erum ekki lengur með Stöð 2 pakkann þá ætlum við þess í stað að hafa nokkur sjónvarpsþátta-maraþon í apríl. Friends, Big Bang Theory, Eastbound & Down og fleira skemmtó verður á skjánum. Fylgstu með á Facebooksíðu Molans hvað verður í boði hverju sinni.
Á FIMMTUDÖGUM ER
MOLAKAFFI+BÍÓKVÖLD
Kaffi latte, góð músík og hver veit nema Íris eða Sigga skelli í pönnsur. Fimmtudagar eru rólegir í Molanum og því kjörinn staður til að slaka aðeins á áður en helgin byrjar.
Þegar kvölda tekur ýtum við á play takkann á DVD spilaranum og horfum á eina eða jafnvel tvær snilldar myndir.
Á FÖSTUDÖGUM ER
POOLMÓT+OPEN STAGE
Ekki missa af föstudögum í Molanum því yfir daginn koma saman bestu pool-leikmenn Kópavogs og víðar og etja kappi um titilinn ‘Poolmeistari Molans’.
Kíktu svo til okkar um kvöldið með gítarinn, trompetið eða söngröddina því að á föstudagskvöldum er sviðið opið. Jam session og karaókí til lokunar.





