Tags
Related Posts
Share This
Slagverksmiðjan í Gerðarsafni
Vúhúhú, nú er komið að því að Slagverksmiðjan sýni afraksturinn af pælingum og púli síðustu 6 vikna.
Upprunalega hugmyndin var að spyrða saman tölvutónlist, slagverki og video-myndskreytingum en þegar hafist var handa kom í ljós að innan hópsins voru listamenn úr öllum áttum. Einhverjir léku á blásturshljóðfæri ásamt einstaka fiðluleikara og bassaleikara, að ónefndum ungum textahöfundi, slagverksleikurum og nema í hljóðstjórn.
Úr varð eins konar fjöllistahópur sem hefur nú lokið við að búa til hljóðverk sem spannar rúmar 10 mínútur í flutningi og inniheldur allt þetta hæfileikafólk. Um er að ræða metnaðarfullan flutning þar sem hljóðverk mætir grafík með lifandi undirleik.
Við hvetjum sem flesta til að leggja leið sína í Gerðarsafn, listasafn Kópavogs í Hamraborginni. Við komum okkur beint að efninu því atriðið er um það bil 15 mínútur í það heila. Það hafa allir tíma til að lífga upp á hefðbundið fimmtudagskvöld og næla sér í hressandi menningarbúst.
Sjáumst hress, bless!




