Tags
Related Posts
Share This
Sumarstörf í Kópavogi 2011
Molinn vaknaði ferskur í morgun og með sumar í hjarta þrátt fyrir snjó og fannfergi. Sumarið er alveg að bresta á, ekki nema 12 vikur í þetta allt saman.
Þeir sem eru áhugasamir um Skapandi sumarstörf eru hvattir til að mæta hressir á kynningarfundinn sem haldinn verður í Molanum f ö s t u d a g i n n 11. mars kl. 17.30.
Andri Þór L e f e v e r , forstöðumaður Molans, fer yfir það helsta er viðkemur Skapandi-störfunum og umsóknarferlinu, sem er tvöfalt. Allir umsækjendur þurfa að skila inn rafrænni umsókn á vefnum auk þess sem krafist er skriflegrar umsóknar sem skilað er á skrifstofu Molans. Ekki er tekið við umsóknum eftir 4. apríl. Það er því full þörf á að kynna sér ferlið vel og íhuga hvað góð umsókn þarf að hafa til brunns að bera.
Líkt og kemur fram á síðu Kópavogsbæjar þá verða um 600 störf í boði fyrir ungmenni með búsetu í sveitarfélaginu. Flest störfin eru hjá áhaldahúsi bæjarins en einnig verður hægt að sækja um á íþróttavöllunum, við sundlaugar, á leikjanámskeiðum og í ábyrgðarstöður leiðbeinenda. Vakin skal athygli á því að aðeins er hægt að sækja um störfin í gegnum heimasíðu Kópavogsbæjar.
Áhugasamir eru hvattir til að leggja leið sína í Molann á föstudaginn og kynna sér málin yfir ylvolgri vöfflu og kaffi.
Frá og með næstu viku býður Molinn einnig upp á a ð s t o ð og aðstöðu við útfyllingu á rafrænum umsóknum í næstu viku. Húsið er opið þri-fös frá kl. 14-23.30.
Bisou!





þarf maður að vera orðin 17 ára ?
Hæ, hæ. Þeir sem sækja um í áhaldahúsinu (merkt 17 ára) þurfa að vera á sautjánda ári. Endilega kíktu við í Molanum ef þú vilt upplýsingar eða aðstoð við umsóknina. Við hjálpum :)
Ég var bara að pæla með umsóknina hjá ykkur í skapandi sumarstörfum, þarf maður að sækja um hjá kópavogsbæ og hvað svo? hvernig viljð þið fá planið sem við erum búnar að gera til þess að komast í molann ?