Tags

Related Posts

Share This

Takk fyrir komuna á Safnanótt!

Það var margt um manninn á Safnanótt, þann 11. febrúar síðastliðinn. Júlíus opnaði stórskemmtilega og áhugaverða sýningu þar sem litagleði réði ríkjum.  Til að fullkomna áhrifin gátu gestir smellt á sig gamaldags þrívíddargleraugum sem gerðu það að verkum að skærar fígúrurnar öðluðust líf og virtust hreyfast í veggnum.

Hugsað var fyrir öllu þetta kvöld og naut Molinn fulltingis frábærra tónlistarmanna á sviðinu og frumlegra ástríðukokka í eldhúsinu. Vala Ýr sá hungruðum listunnendum fyrir brakandi ferskum vöfflum og sætum pönnsum. Hljómsveitin Friends 4evah og djassbandið Stimplar eru skipaðar eðaltónlistarmönnum sem sáu um að halda stemningunni uppi í húsinu.  En það voru fleiri tónlistarmenn komu við sögu. Dáðadrengirnir í Pedopriest stigu á stokk alveg óvænt en þeir voru einmitt að spila fyrr um kvöldið í Bókasafni Kópavogs.

Þetta var því frábærlega vel heppnað kvöld í alla staði og Molinn þakkar öllum kærlega fyrir komuna.

Vert er að geta þess að sýningin hans Júlla mun prýða veggi Molans alveg fram í mars svo að allir eru hvattir til að kíkja við á opnunartíma Molans (þri-fös frá kl. 14-23.30) og styðja við bakið á íslenskri unglist.