Tags
Related Posts
Share This
Að gefa sætum hlutum vígtennur
Dagana 11. – 13. febrúar stendur yfir svokölluð Vetrarhátíð en þá er býðst öllum að sækja skemmtilega og fjölbreytta viðburði í menningarstofnunum víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.
Kópavogsbær tekur að sjálfsögðu þátt í þessari hátíð við hvetjum alla til að kynna sér dagskrána. Safnanæturstrætó býður upp á sérstakar áætlanaferðir á milli safna og bæjarfélaga. Þetta gerir öllum kleift að gera sér glaðan dag og njóta íslenskrar menningar í botn.
Ekki láta þig vanta, krúsídúlla!
Molinn – ungmennahús, kl. 20.00-23.30
Hér í Molanum er ungmenningin í hávegum höfð. Júlíus Valdimarsson opnar fyrstu myndlistarsýninguna sína og nefnist hún “Að gefa sætum hlutum vígtennur”. Júlíus er nemi í Myndlistaskóla Reykjavíkur og hefur mikinn áhuga á bæði myndlist og ljósmyndun. Djassbandið Stimplar mun leika fönkí tóna og í Molakaffi verður Vala Ýr við stjórnvölinn og bakar ömmulegar pönnsur og hnallþórur.
Bókasafn Kópavogs
Bókó er með þétta dagskrá svo að allir ættu að smella á linkinn hér fyrir ofan. Tékkið endilega á hljómsveitinni Pedo Priest sem spilar frá 20.30 -21.00
Héraðsskjalasafn Kópavogs
“Íslendingurinn í Kópavogi”. Ljósmyndasýning og opið hús, frá 19.00-23.30
Gerðarsafn
Myndlistarsýningin “Ásýnd landsins”.
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Kynnir til sögunnar “Upprunalega Íslendinga”, lítt þekktari frumbyggja þessa lands, marflær og krabbadýr! Kynntu þér málið hér.




