Tags
Related Posts
Share This
Vikan 17.-21. janúar 2011
Nýja árið er að byrja með trukki hérna á hæðinni. Það þýðir ekkert annað en að finna upp á einhverju stórskemmtilegu í þessu blessaða skammdegi sem hrjáir okkur skerverja, verandi svona norðarlega á kringlunni.
Helst í fréttum þessa vikuna er meðal annars HM í handbolta. Það er ekki galið að kíkja í gamla góða M o l a n n og horfa á gæðasport og spennu og hvetja okkar lið.
S L A G V E R K S M I Ð J A N með Sigtryggi Baldurs er einnig að byrja. Þetta er samvinnuverkefni þar sem smærri hópar/einstaklingar vinna að stóru sameiginlegu markmiði og performans. Og fyrir hverja er þetta? Í grundvallaratriðum þá eru það allir sem hafa áhuga á að leita nýrra leiða í listsköpun og framkomu. Tónlist, mynd- og vídjólist og leikrænni framkomu blæðir saman í eitt. Skoðað er hvernig hægt er að endurnýta gamla hluti til að skapa eitthvað alveg nýtt og framandi. Nýtni, víðsýni, sköpun, frjósemi hugans, endurnýjun, kímnigáfa, ímyndunarafl… bara allt!
Vikan mun því líta einhvern veginn svona út:
Mánudagur: Húsið opnar sérstaklega kl. 20 fyrir ÍSLANDO-JAPAN (hefst 20.30)
Þriðjudagur: SLAGVERKSMIÐJAN kl. 20
ÍSLAND – AUSTURRÍKI kl. 20.20
Miðvikudagur: ÞÝSKALAND – FRAKKLAND kl. 17.10
Nördakvöld MK kl. 20
Fimmtudagur: ÍSLAND – NOREGUR kl. 18.00
SLAGVERKSMIÐJAN kl. 20
Föstudagur: Hið sívinsæla gourmet-súpukvöld kl. 19




