Tags

Related Posts

Share This

Ör-annáll

Það er ekki mikið eftir af þessu blessaða ári 2010 og Molinn mun sprengja það burt sæll og ánægður með sitt. Nú kjaftar hver tuska á dularfullum völvum með hverja dómsdagsspána á fætur annarri en Molinn hefur engan áhuga á slíku væli enda skapari örlaga sinna.

Árið 2010 var ákaflega gæfuríkt og gott. Molinn hagaði sér með eindæmum vel og kosmosið gjaldaði greiðann með alls kyns óvæntum gjöfum: forláta sófasetti í stássstofuna sem við fengum í “langtímageymslu”, syndsamlega fallegu og skarlatsrauðu poolborði, og síðast en ekki síst langskólagengnu, sjálfspilandi píanói. Eða svo gott sem.

Viðburðirnir voru mýmargir og af öllum stærðum og gerðum, til að mynda:
mömmuhópar, ungbarnaskyndihjálparnámskeið, tónleikar, LAN-mót, Pytturinn, Skapandi sumarstörf, listasýningar, ungmennahúsaþing, kaffihús án landamæra, jólaleikrit, 10bekkjarheimsóknir, námsver, námsvinir, námsaðstoð, handverksmarkaður, Hamraborgarhátíð, bandí á planinu, Kópavogsdagar, blúshátíð, spilakvöld, listahittingar, prjónakvöld, ostakvöld, hip-hop kvöld, hrekkjavakan, spunakeppni MK, Lagasmíðakeppnin, Molinn í beinni útsendingu, aðventuhátíð, og margt margt margt fleira!

Molans bíða ótrúlega spennandi og skemmtileg verkefni á nýja árinu í bland við árlegar áskoranir, eins og
S K Í Ð A F E R Ð I N A. (Nú gerist þetta, peoples :) )

Þannig að, elskurnar mínar, þakka ykkur fyrir  f r á b æ r a r  s t u n d i r  á  árinu sem er að líða. Megið þið eiga gleðileg jól og áramót og njóta ægilegrar farsældar á nýja árinu.

Við hlökkum til að sjá ykkur 4ða janúar 2011.

Lifið heil og gleðilegt nýtt ár !!!