Tags
Related Posts
Share This
Ertu puðrureddi? Horböng eða typpilsinna?
Það eru góðar líkur að þú sért þetta allt saman og vitir ekki einu sinni af því.
Bara vegna þess að þú hefur ekki spilað Fimbulfamb. Fimbulfamb hefur verið vinsælt borðspil í áraraðir, svo vinsælt að það var endurútgefið fyrir skemmstu. Molinn greip gæsina á meðan hún gafst og náði sér eintak hið snarasta.
En út á hvað gengur Fimbulfamb?
Fimbulfamb er blekkingarleikur. Leikmenn reyna að blekkja hver annan með því að skálda skýringar á einhverjum fyndnustu og fáránlegustu orðum sem finnast í íslenskri tungu. Keppendur fá svo stig, takist þeim að blekkja andstæðingana eða finna rétta skýringu orðsins. Það eina sem þú þarft til að vera með er góða skapið og dass af ímyndunarafli!
Stofnuð hefur verið sérstök grúppa hjá okkur á Facebook sem heitir Fambarnir í Molanum. Ef þú hefur áhuga á að prófa og vera með, endilega addaðu okkur og skráðu þig í Fambana. Stefnt er að halda fyrsta spilakvöldið um miðjan desember. Verið með og finnið ykkar innri famba á spilakvöldum.
Önnur spil sem Molinn á:
Activity – Nýtt! Actionary, Pictionary og orðaleikur í einu spili.
Werewolf – Alltaf klassískt. Ímyndaðir þorpsbúar glíma við ímyndaða varúlfa, eða hvað?
Tafl – við eigum afar fallegt skákborð og menn, klukku og allt saman.
Eggjadans – Nýtt! Einfalt og skemmtilegt spil sem eggjahrærir upp í þér.
Babylon
Spurt að leikslokum
Junglespeed
og fleira!





