Tags

Related Posts

Share This

Ýlir byrjar

“Matar og voða er manni þörf, þeim, er hefir um fjall farið.”

Molinn gerir líkt og Hávamál segja til um og því væsir ekki um neinn af okkar gestum. Hér er hlýtt og notalegt allan ársins hring og við tökum vel á móti fólki, góðum hugmyndum og ábendingum. Kynntu þér hvað er í boði og vertu vinur okkar á Facebook.

23. nóvember.
Þriðjudagsbíó og pool. Fimbulfamb-spilið dettur í hús og við getum ekki beðið eftir því að prófa. Ertu game?

24. nóvember.
Listakvöld eru alltaf á miðvikudögum. Þetta er opinn hópur og nýliðar eru velkomnir. Lærðu að stensla, prjóna, vinna með hugmyndir. Eco graffiti og reverse graffiti, þú verður að kynnast þessu! Þægilegt atmó og skemmtilegt fólk.

25. nóvember.
Lagasmíðakeppni NMK. Nemendur Menntaskólans í Kópavogi stíga á stokk með frumsamið efni, dómnefnd sér um að skera úr um hver/hverjir skara fram úr. Spikað og flott lið í dómnefnd, Bent rapphundur, Steindi jr. og Vala grand! Ekki láta þig vanta!

26. nóvember.
Súpukvöld eru alltaf á föstudögum. Það er bara eitthvað notalegt við að hittast og elda og brjóta brauð saman. Ástríðukokkar eru velkomnir, sem og fjölskylduleyniuppskriftir. Stundum er þröngt í búi svo að úr verður naglasúpa. Alltaf tekst okkur samt að töfra fram eitthvað sem nærir ekki bara mallann heldur sálina. Þannig rúllum við bara. Mæting kl. 19 í undirbúning og matur kl. 20.

27. nóvember.
Jólaljósin tendruð á Hálsatorgi. Komdu við í Molanum og sjáðu stutta útgáfu af Jólasögu Charles Dickens. Heitt verður á könnunni, list á veggjunum og gleði í húsinu. Verið velkomin!

29. nóvember.
Námsverið hefst. Opnunartíminn lengist í Molanum og verður mán-fös frá 10-22 á kvöldin. Tilboð á ilmandi beyglum og ávöxtum í Molakaffi. Við minnum einnig á ÓKEYPIS AUKATÍMA í stærðfræði dagana 29. nóv, 1., 2., og 7. des. Þeir sem vilja aðstoð í öðrum fögum endilega hafið samband í síma 554-6626/e-mail: kopavogur@redcross.is.

Desember.
Dagskráin í desember verður auglýst bráðlega. Við stefnum á að halda jólatónleika í ár, líklegast um miðjan desember. Áhugasamir tónlistarmenn endilega hafið samband á molinn@molinn.is. Við erum einnig á fullu við að smíða sérstaka dagskrá á milli jóla og nýárs sem verður auglýst síðar. Ef þú lumar á hugmynd, hvíslaðu henni að okkur :)

x

Molinn