Tags

Related Posts

Share This

Á döfinni…

Þið eruð öll að velta fyrir ykkur hvað er að gerast í svalasta ungmennahúsinu á kópavogshæðinni svo að hér sjáið þið það helsta.

Súpukvöld á föstudögum! Nýtt! Molinn býður upp á notalega súpu á köldum vetrarkvöldum. Við hittumst, eldum, borðum, spjöllum, spilum, glápum og hvaðeina sem okkur dettur í hug. Þetta er opið öllum og alveg ókeypis.

Listakvöld á miðvikudögum! Ef þú hefur áhuga á að gera eitthvað skapandi þá er þér boðið. Við stenslum, skeggræðum, prjónagröffum, gluggum í artífartí bækur og skoðum hvað er að gerast í kringum okkur. Þetta er opið öllum og þú þarft ekkert að leggja til nema áhugann!

Sigga VanHoppum í Gallerí Sykri! Ljóðlist, handverk, ljósmyndir og teikningar fyrir þig að njóta, sýningin stendur til 26. nóvember.

Námsverið hefst í nóvember! Þá opnum við snemma og lokum seint. Það er algjör snilld að koma í Molann og læra lexíurnar. Ókeypis aukatímar í helstu námsgreinum og pool í pásum. Fylgstu með á www.molinn.is og Facebook.

Tónleikar 18. nóvember! Jazz, fönk og rokk og ról passar fínt saman! Böndin verða auglýst síðar.

Jólahátíð í Kópavogi! Þann 27. nóvember verða jólaljósin tendruð á Hálsatorgi með tilheyrandi söngvum og jólaveinasprelli. Molinn verður í jólaskapi og heldur jólamarkað þar sem hægt verður að kaupa heimagerðar jólagjafir, jólakökur og fleira. Ef þú ert að föndra, prjóna eða hanna eitthvað fallegt, hafðu samband við okkur og vertu með. Síminn er 570-1646 eða sendu tölvupóst á netfangið andri@kopavogur.is