Tags

Related Posts

Share This

Sigga VanHoppum opnar í Gallerí Sykri


“Planið mitt í vetur er að geta falið mig í snjónum.”

Föstudaginn 5. nóv. opnaði fyrsta sýning vetrarins í Gallerí Sykri. Að þessu sinni er það ung listakona að nafni Sigríður Björk Bragadóttir, sem sýnir undir nafninu Sigga VanHoppum. Hún byrjaði fyrst að prufa sig áfram í ljósmyndun og hélt um tíma úti eins konar ljósmyndadagbók á netinu. Undanfarið hefur hún verið að þreifa fyrir sér á öðrum sviðum, þá helst í handverki og ritlist.

Sýningin býður upp á vænan bita af ljóðlist, handverki og myndlist. Það er alltaf heitt á könnunni í Molanum og sýningin stendur til 26. nóvember.

Allir velkomnir og ókeypis inn!