Tags

Related Posts

Share This

L-ekkert og landvinningar á miðvikudögum

Langar þig að hafa áhrif á umhverfið þitt? Ertu að springa úr þörf til að skapa eitthvað brjálæðislega flott og veist ekkert hvernig þú átt að fara að því? Miðvikudagskvöld í Molanum er málið fyrir þig!Þá hittist hópur af skapandi fólki sem kallar sig L-ekkert. Eins og nafnið gefur til kynna þá búum við til eitthvað fallegt úr verðlausu drasli, yfirtökum ljót skúmaskot, prjónagröffum, stundum górillu garðyrkju og skemmtum okkur vel í leiðinni. Sigríður Björk vöruhönnuður er áttavitinn okkar í þessu verkefni, hún sér til þess að við villumst í réttu skúmaskotin og að enginn þurfi að ganga plankann.