Tags

Related Posts

Share This

Ert þú ung og ófrísk?

Ertu í vafa og veist ekki hvert þú átt að leita? Líður þér eins og þú sért ein í heiminum? Langar þig að hitta aðrar stelpur í svipuðum sporum og á svipuðum aldri? Áttu erfitt með að ræða þetta?

Molinn er að fara af stað með vikulegan hitting fyrir ungar konur sem eiga það sameiginlegt að vera þungaðar og undir tvítugu. Það getur verið erfitt að horfast í augu við aðstæður, foreldra, vini, skólann og jafnvel samfélagið, og engin okkar ætti að þurfa gera það án stuðnings. Um er að ræða fundi í þægilegu umhverfi þar sem formlegheit eru látin lönd og leið og aðalmarkmiðið er stuðningur og félagsskapur.

Molinn getur aðstoðað við að koma á tengslum við fagaðila (ljósmæður, félagsráðgjafa, sálfræðinga) ef þess er óskað. Hvort sem þú ert utan af landi eða úr hverfinu, þá er hægt að leita til okkar. Fullum trúnaði er heitið.

Fyrir frekari upplýsingar, hafið samband í síma 848-7672 eða á netfangið irisb@molinn.is. Einnig er hægt að adda okkur á Facebook, eða hringja beint í Molann í síma 570-1646.