Tags

Related Posts

Share This

Molinn kominn á vetraráætlunina


Jæja elskurnar, nú er Molinn að komast í haust- og vetrargírinn aftur eftir aldeilis frábært og skapandi sumar.

Opnunartímar
Þann 31. ágúst munum við svissa yfir á vetraráætlun sem þýðir að opnunartíminn verður
þriðjudaga-föstudaga frá 14-23 á kvöldin. Á mánudögum er lokað nema fyrir sérstaka hópa.

Fleira veit sá er fleira reynir
Þetta er tilvitnun úr Grettissögu, sjáið þið til. Við stefnum á þétta og fjölbreytta dagskrá í vetur, hefðbundna viðburði í bland við nýjungar. Í september munum við auglýsa frábær ný námskeið sem við hvetjum fólk til að kynna sér. Aðstaðan hérna er alveg til fyrirmyndar og hvetjum alla til að líta við og chillaxa í stássstofunni.

Ráðgjöf, tækifæri, atvinna
Molinn er vettvangur fyrir ungt fólk sem vill vinna að hugmyndum sínum og fá til þess aðstoð og eflingu. Ekki láta kvöldfréttir af slæmum atvinnuhorfum á Íslandi sliga þig. Molinn getur hjálpað þér í atvinnuleitinni, komið þér í samband við ráðgjafa, eða hjálpað til við að koma þínum hugmyndum á legg. Líttu til okkar með þínar pælingar og látum verða af þessu.

Á dagskrá í vetur:

TÓNLEIKAR
MYNDLIST
LJÓSMYNDASÝNINGAR
GORE-MÁNUÐUR Í OKT-NÓV
NÁMSVER
ÓKEYPIS AUKATÍMAR
MÁLÞING
MEÐGÖNGUNÁMSKEIÐ
OSTAKVÖLD
HLUTVERKASPILAKVÖLD
LAN-MÓT
ÚTSLÁTTARMÓT Í POOL
PRJÓNAKVÖLD
OPIÐ SVIÐ FYRIR HLJÓMSVEITIR
FLÓAMARKAÐUR
MOLAKAFFI
HEPBURN-MARAÞON FYRIR STELPUR
BRETTAKLÚBBUR

…og endalaust margt fleira !!

Láttu sjá þig :)