Tags
Related Posts
Share This
Uppskeruhátíð Skapandi sumarstarfa 2010

Skapandi sumarhópar bjóða Kópavogsbúum og öðrum borgurum heimsins á uppskeruhátíð
þriðjudaginn 20. júlí og miðvikudaginn 21. júlí. Alls voru í sumar 42 þátttakendur sem unnu að mismunandi verkefnum. Allir eru hjartanlega velkomnir, það er ókeypis inn á báða atburðina og veitingar í boði. Vert er að hafa í huga að tónlistarveislan á þriðjudaginn er í Salnum en sýningin á miðvikudaginn verður í Molanum.
Þriðjudagur, kl. 20 í Salnum:
Heljarinnar tónlistarveislu verður slegið upp í Salnum, Kópavogi, klukkan 20.00. Um er að ræða ólíka tónlistarhópa sem tefla fram fjölbreyttri dagskrá. Í sumar hafa þau komið fram á hinum ýmsustu viðburðum, víðsvegar um Kópavog og nágrenni.
Fram koma meðal annars:
Team Rocket
Pípóla
Tríóið Drulla
Nordisk Familjebok
Sjúklega Sveittir!
Miðvikudagur, kl. 20 í Molanum:
Skapandi-starfsmenn bjóða gesti velkomna og sýna frá starfsemi sumarsins. Meðal annars verður boðið upp á ljósmyndasýningar, afrakstur fatahönnuða og rithöfunda, vídjóverk og starf Jafningjafræðslu Kópavogs.
Þeir sem koma að þessari sýningu eru:
Agla Egilsdóttir
Sigrún Skaftadóttir
Birna Jensdóttir
Fríða Ísberg
Friðmey fatahönnun
Nína Hjálmarsdóttir
Nordisk Familjebok
Sigurbjörg Stefánsdóttir
Rauði fálkinn
Vignir Árnason
Team Falcon Punch
Jafningjafræðslan
Verið öll hjartanlega velkomin!!




