Með heimatilbúnar myndavélar.
Róbert og Hjörtur eru tveir eðal Kópavogsbúar sem eru að vinna við allskyns verkefni í sumar í Molanum, þeir kalla sig Team Fallcon Punch, og vorum við það heppnar að ná þeim í spjall og forvitnast um verkefni þeirra.
Hvaða verkefni eru þið að vinna að í sumar?
Róbert- Við byrjum á því að gera ljósmyndir með myndavélum sem við gerðum sjálfir. ( Þeir gerðu til dæmis myndavél með macintosh- dollu, þar sem er gert gat á dósina og svo er ljósmyndapappír settur inn í og þá er kominn heimatilbúnin myndavél ) Það verður svona gamaldags look á myndunum. Svo er planið að gera áróðursplaköt.
Hjörtur – Svo ætlum við að þýða alla Rocky IV yfir á íslensku sem við ætlum svo að sýna á stórum skjá í Molanum.
Hvað eru þið lengi að taka eina mynd á svona myndavél?
Róbert – Þegar maður er búin að stilla myndavélinni upp úti tekur þetta svona þrjár sekúndur en svo þurfum við að framkalla ljósmyndirnar sjálfir sem tekur aðeins lengri tíma
Takið þið þá aðalega myndir úti?
Hjörtur- Já, við þurfum allt ljósið sem er úti til þess að þetta virki.
Hvernig áróðursplaköt eruð þið með í huga?
Róbert- Þau eiga að vera með íslensku þema en við erum en að vinna með hugmyndir af þeim.
Afhverju Rocky IV frekar en einhver önnur mynd?
Hjörtur- Ég horfði á hana um daginn og það er rosalega fyndið að sjá rússneska gæjann segja “I must break you” og þýða það svo yfir á íslensku.
Svo berst talið yfir hvort strákarnir hafa séð Sódóma Reykjavíkur þýdda á ensku en það eru bara þrír eða fjórir leikarar sem tala fyrir alla karektera í kvikmyndinni sem okkur fannst voðalega fyndið og því styðjum við hugmynd strákanna með að þýða Rocky IV.
Ætlið þið að hafa atburð í sumar?
Hjörtur- Já, við ætlum að reyna að hafa einn atburð í lok hvers mánaðar í samstarfi við aðra skapandi sumarstarfsmenn og gera einhvað tryllt.
Lokaorð?
Róbert - Þetta er skemmtilegasta vinna sem ég hef unnið við!
Hjörtur -Já, sama hér!
Það var ótrúlega gaman að spjalla við drengina og voru þeir uppfullir af hugmyndum. Það verður fjör þegar þeir frumsýna Rocky IV á íslensku og látum við ykkur vita með fyrirvara þegar sá skemmtilegi dagur rennur upp.
Með bros á vör,
kær kveðja
RANDOM ARTICLE!


Twitter
Facebook
RSS straumur
Engar athugasemdir