Tags

Related Posts

Share This

Spænskumælandi rithöfundur

Vignir er ótrúlega klárt ljóðaskáld og smásagnahöfundur úr Kópavoginum.
Þegar ég hitti Vigni þá sat hann á vinnustofu sinni upp í Mola og drakk tereré (gourmet te frá Paraguay).


Jæja Vignir, hvert er verkefni þitt í sumar?

Ég er með opna vinnustofu í skapandi skrifum.

Ég býð alla velkomna sem vilja forvitnast eða fá leiðbeiningar í skapandi skrifum.


Hvað ertu aðallega að skrifa?

Smásögur og ljóð, einna helst.


Þú varst í skapandi sumarstörfum í fyrra, hvert var verkefnið þitt þá?

Í fyrra gaf ég út mína fyrstu bók sem fjallar

um ungt fólk,  stöðu þeirra í kreppunni og hvernig það bregst við henni.


Hvar er hægt  að nálgast bókina þína?

Annað hvort hjá mér eða í bókabúðinni Útúrdúr í Austurstræti.


Hefurðu gefið eitthvað meira út?

Já, ég hef gefið út smásögur í takmörkuðu upplagi.


Og stefnirðu á að gefa eitthvað út á næstunni ?

Já, líklegast þá ljóðabók.


Vignir, núna ert þú að súpa á þessu tereré,  hvar kynntistu því?

Ég var skiptinemi í Paraguay og þar er mikil tereré-menning.


Þú hlýtur þá að vera spænskumælandi. Yrkirðu stundum á spænsku?

Já, einnig sem ég stundum bæði ljóð og smásögur á spænsku.


Ég þakka Vigni fyrir þetta skemmtilega viðtal, hann er fullur af visku og það verður spennandi að sjá hann taka við Íslensku Bókmenntaverðlaununum einn daginn.

Adios amigos….


Sigrún Skafta í RANDOM ARTICLE!!!!