Tags
Related Posts
Share This
Skemmtilegt og bjart.
Við hittum Birnu einn skemmtilegan föstudag í hádeginu og tókum hana tali og smelltum af henni myndum.
Hún er hress og mjög skapandi. Þetta er þriðja árið hennar í skapandi sumarstörfum og alltaf er hún með eitthvað nýtt á prjónunum.
Hvernig verkefni ertu með ?
Mannlífs- og portrait-myndir sem ég ætla að taka víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.
Ég ætla síðan að fá vinkonur minar til þess að sitja fyrir á portrait-myndum.
Hefurðu lært eitthvað tengt ljósmyndun?
Nei, en ég er lærður grafískur miðlari úr Tækniskólanum (sem hét áður Iðnskólinn í Reykjavík). Þar lærði ég grunn í myndvinnslu.
Vinnirðu mikið myndirnar?
Já, eitthvað – fixa birtuna og litina.
Hvað er planið fyrir sumarið?
Planið er að halda sýningu í lok sumars í Molanum.
Ætlarðu að leggja ljósmyndun fyrir þig sem ævistarf?
Nei, ætlar frekar í auglýsingahönnun og væri þá helst til í að læra það erlendis.
Hvernig sérðu sumarið?
Skemmtilegt og bjart.
Við getum kvittað undið það að Birna er klár ljósmyndari, höfum við séð nokkrar myndir og að verður spennandi að sjá hvernig henni á eftir að ganga í sumar. Við fáum svo vonandi myndir hjá Birnu til að birta hér á Molanum.
með bjartakveðju RANDOM ARTICLE!





