Tags
Related Posts
Share This
Skáldverk með markmiðið að vekja innri nördann!
Við hittum strákana Huga, Vébjörn og Þorfinn sem eru í skáldhópum Rauði fálkinn á Muffin Bakery þar sem þeir sögðu okkur frá ævindýra bókum, spilum og LARPI! Þeir eru rosalega hressir og miklir ævintýramenn.
Hvert verður verkefni sumarsins?
Búa til skáldverk með það markmið að vekja innri nördinn í ungum Kópavogsbúum og vekja áhuga á ævintýrabókmenntum.
Við erum að semja bók og búa til spil um ævintýri.
Ætlum einnig að bjóða Kópavogsbúum upp á LARP (spyrill játar að hafa larpað en tekur fram að það hafi verið í vinnuni sinni). Þess má geta að strákarnir voru með LARP á 17. júní.
Hvernig verður útgáfumálum háttað?
Spilið verður vonandi gefið út í samstarfi við Nexus og í framhaldi af því munum við halda spila-session í Molanum og bjóða fólki sem er nýtt í þessum heimi upp á kennslu útfrá heiminum sem við erum að skapa.
Hvernig heimur verður þetta, á þetta að verða svipað og Dungeons and Dragons?
Já, svipað því og Lord Of The Rings allavegna í þessum klassíska fantasíu stíl.
Hvernig verður með dreifingu á bókinni háttað?
Við ætlum að prenta þetta í nokkrum eintökum sem hægt verður að nálgast á helstu stöðum í Kópavogi, t.d. Molanum, Muffin Bakery, bakaríum og Nóatúni.
Við ætlum líka að fara á ýmsa staði og lesa fyrir fólk.
Jæja strákar þið eruð allir smá nördar er það ekki, hver er mesti nördinn?
Vébjörn, en það er samt ekkert slæmt að vera nörd.
Hvernig lítur sumarið út?
Spila session og byrja að dreifa því efni sem er tilbúið.
Hvaðan kom svo þessi hugmynd að búa til spil og ævintýrasögu?
Vébjörn fékk hugmyndina þegar hann sat í íslensku í MH og kallaði til sín tvo góða vini Þorfinn og Huga, strákunum leist vel á hugmyndina og svo verður spennandi að sjá útkomuna.
Lokaorð.
Leyfum nördanum að lifa og blómstra!
Við þökkum strákunum fyrir að veita okkur innsýn í ævintýraheiminn sem þeir eru að skapa og vonum innilega að það verður haldið annað LARP sem við getum tekið þátt í , við fáum gæsahúð um líkamann af spenning yfir því að fá að lesa bókina þeirra og spila spil!
Með star wars kveðju RANDOM ARTICLE!!!





