Tags

Related Posts

Share This

Heimsfrægð, heimsyfirráð og svo spila á leikskólum.

Við hittum hljómsveitina Team Rocket á Austurvelli þar sem sólin skein og mótórhjól voru með læti en þar sem við vorum öll svo glöð í hjarta og okkur fannst strákarnir brjálæðislega fyndnir reyndum við að spyrja spurninga og fá svör.

Hver er mesti rokkarinn?

Bjöggi – Við erum eiginlega allir meiri rokkarar heldur en Danni en Gauti er samt mesti rokkarinn.

Hver ert planið ykkar fyrir sumarið?

Heimsfrægð, heimsyfirráð og svo spila á leikskólum líka.

Hvernig lög ætlið þið að spila á leikskólum?

Gísli - Teknó og speed metal.

Bjöggi – Og svo barnalög.

Danni- En svona í alvöru þá verður þetta djass-skotið og barnalegt.

Bjöggi gerir grín að leikskólanir verða að fara hemja sig því línurnar hjá þeim eru rauðglóandi allan daginn.

Er einhver umboðsmaður í hópnum?

Danni-  Ef það er einhver þá hlýtur það að vera hann Bjöggi – hann er mesti plöggarinn!

Hafið þið verið að spila áður saman ?

Gísli- Þetta er súpergrúppa

Gauti- Við höfum allir verið að spila með hvort öðrum en ekki ekki náð að spila allir saman eins og núna!

Danni – Ég, Bjöggi og Gísli erum allir saman í hljómsveit sem heitir Mikado og spiluðum meðal annars á Airways.

síðan er ákveðið að hafa viðtalið örstutt og planað var hittingur þegar meira líður á sumrinu.

Lokaorð

Vissuð þið að það eru aðeins 150 Pokímonar til?


Strákarnir í Team Rocket eru eftir að gera góða hluti í sumar bæði á leikskólum í Kópavoginum þar sem þeir ætla að troða upp og auðvitað ætlum við að láta ykkur vita með góðum fyrirvara!!

með frið í hjarta kveðja RANDOM ARTICLE!