HALLDÓRA FRIÐMEY
Halldóra Friðmey er ungur fatahönnuður í Kópavoginum sem við hittum eftir að við vorum búnar að grilla saman ásamt öðru skapandi fólki í Kópavogi.
Halldóra var í fötum og með skart sem hún hannaði sjálf, hún var svolítið feimin en við náðum nokkrum gullmolum frá henni.
Hvað er nafnið á verkefninu þínu?
Ég hanna undir nafninu Friðmey sem er seinna eiginnafn mitt
Hvar ertu að læra fatahönnun?
Ég er á listnámsbraut í FB að læra fatahönnun.
Hvaða hönnuður, hönnun eða stíll veitir þér mestan innblástur?
Ég er mjög hrifin af svokallaðri Emo scene og punk rokki, Mér finnst líka þetta 50’s 60’s look mjög spennandi og hrífst af því looki
Hvert verður verkefni þitt í sumar?
Ég er ekki alveg komin með lokaákvörðun um það en ég ætla að búa til hettupeysur, bolakjóla, leggings og skartgripi.
Verður með sýningu i lok sumars?
Já einskonar sýningu , ég er ekki búin að taka ákvörðun um það hvernig hún verður nákvæmlega, ég er alltaf að fá nýjar hugmyndir á hverjum degi.
Við erum virkilega spenntar að fá að sjá fleira af fatalínunni Friðmey og látum ykkur vita með fyrirvara þegar Halldóra setur upp sýningu.
Kveðja með kærleik RANDOM ARTICLE


Twitter
Facebook
RSS straumur
Engar athugasemdir