PÍPÓLA
Agla og Sigrún lögðu leið sína í hjarta Reykjavíkurborgar til þess að hitta skemmtilegt ungt fólk sem eru í skapandi sumarstarfi í Molanum og verða þau spilandi á ýmsum stöðum í Kópavoginum í allt sumar – t.d. í strætó svo dæmi sé tekið.
Þið eruð hljómsveitin Pípóla!
Upphefjast miklar rökræður um hvað þau eru; tónlistarhópur, skemmtikraftar, hljómsveit, útkoman varð…
- Við erum svo miklu meira en það!
Á hvað spilið þið?
Eva Halldóra: Ég syng bara, er meira svona þessi með tamborínuna..
Gísli Gunnar: Ég spila á gítar, píanó og ýmislegt tilfallandi. Svo syng ég líka.
Aron Steinn: Ég syng og spila a nasaflautu (Eva hrópar: Hann spilar líka á trompet).
Salka Sól: Ég syng og glamra á allskonar hljóðfæri, meðal annars harmonikku.
En í rauninni geta þau spilað á næstum allt – mjög fjölhæfur tónlistarhópur hér á ferð.
Nú eru þið öll frekar klikkuð, hver er mesti flippskúnkurinn í Pípólu?
Aron virðist fá flest atkvæði!
Salka: En annars eru Eva og Aron eins og systkini og æsa hvort annað alltaf upp í eitthvað rugl.
Blaðamaður kemur með óviðeigandi brandara sem er of grófur fyrir Molann um það að þau æsi hvort annað upp.
Hvernig tónlist spiliði?
Alla!
Allt frá Viltu dick yfir í skýin og regnbogann. Alls kyns ábreiðutónlist.
Hvernig hljómar sumarið?
(þau missa sig öll og svara öll í einu…)
Vel
LALALA
DOREMÍFAAA
Hljómar eins og blús-skalinn!
Salka þaggar niður í þeim og segist búast við því að sumarið verði bara skemmtilegt og að þau ætli að vera dugleg að æfa sig.
Við ætlum að að fylgjast með þeim í sumar og látum ykkur vita þegar hin frábæra Pípóla lætur sjá sig í Kópavoginum!
kveðja RANDOM ARTICLE


Twitter
Facebook
RSS straumur
Engar athugasemdir