Nordisk Familjebok
Við píurnar Agla og Sigrún hittum skemmtilega Kópavogsstráka sem eru að gera góða hluti í raftónlist í hljómsveitinni Nordisk Familjebok! Þeir eru búnir að vera æfa sig á fullu en fengu sér smá pásu til þess að eiga við okkur örfá orð.
Á hvað spilið þið?
Emil : trommur
Sindri : gítar
Hjalti reynir að vera fyndinn og svarar og segist spila á sítar af því það rímar við gítar, en hann samt spilar ekkert á sítar – hann sér um sjónlist fyrir bandið.
Bragi: Forritari
Nú eru þið frekar alvarlegir menn (samt ekki). Hver er sá alvarlegasti af ykkur?
-(allir í kór)Emil
Hvernig tónlist spiliði?
-Tilraunakennda raftónlist
Hvernig hljómar sumarið?
-Ekkert planað en það verður tryllt seinnipart sumars
Ætli þið að halda áfram eftir sumarið?
-Já, ef sumarið gengur vel,
Cash Money Fame…
Lokarorð
-Sólin vermir bakið
en er hún leggst yfir bakið
því fær ekki breytt….
(svo mundu þeir ekki afganginn af ljóðinu sínu)
Við mælum með að allir fari og hlusti á Nordisk Familebok í sumar en þeir verða iðnir við spilerí í Kópavognum og ætlum við láta ykkur vita hvar og hvenær þeir munu troða upp.
ps. þeir eru rosa sætir
nordisk kveðja RANDOM ARTICLE


Twitter
Facebook
RSS straumur
Engar athugasemdir