Útidúr og Pascal Pinon í Háteigskirkju

Þriðjudaginn 15. júní mun hljómsveitin Útidúr halda tónleika í Háteigskirkju ásamt hinu frábæra bandi Pascal Pinon.

Allur ágóði mun renna í upptökur á fyrstu breiðskífu Útidúrs, en sveitin er á leiðinni í stúdíóið Sundlaugin núna í júlí til að taka upp.

Húsið opnar 19:30 og fyrsta hljómsvetin mun stíga á stokk stundvíslega klukkan 20:00. 1000 kr inn.

Útidúr er ung en stór hljómsveit sem flytur metnaðarfullt indie-gleðipopp með dramatískum blæ. Ef fólk vill fleygja einhverjum útlenskuslettum fram þá eru lögin svolítið „widescreen“, enda eru tólf manns í bandinu, líka eru margir sem halda því fram að tónlistin sé nokkuð „cinematic“ en það fer þó augljóslega eftir hvernig mynd um er að ræða.
Í sumar mun Útidúr taka upp sína fyrstu breiðskífu í Sundlauginni. Engin niðursveifla er til staðar í lifandi flutning hjá Útidúr sem einkennist af krafti og spilagleði. Einnig er búið að koma fyrir forsmekk á netinu af komandi plötu.

http://utidur.bandcamp.com/

Pascal Pinon hefur á stuttum starfstíma sínum eignast marga aðdáendur en hljómsveitin tók þátt í Músíktilraunum á síðasta ári, nýlega gáfu þær út plötuna “Pascal Pinon” og vakti hún mikla athygli. Hljómsveitin samanstendur af fjórum 15-16ára stúlkum úr vesturbænum.

www.myspace.com/pascalpinon

Ekki láta þetta stórbrotna tækifæri til að njóta tónlistar þessara hljómsveita við þessar einstöku aðstæður fram hjá þér fara. Í kirkju.

*Athugið* þar sem hljómsveitin Útidúr verður upptekin við upptökur í sumar þá verða þetta líkegasta síðustu tónleika þeirra í sumar. Fyrir utan að spila á Jónsvöku 24. júni.

 
 
 

Engar athugasemdir

Skildu eftir skilaboð





 

Molinn er allstaðar á netinu

Molinn á Facebook Molinn á YouTube Molinn á Twitter