Védís Alma í Gallerí Sykri
Listamaðurinn sem sýnir nú í Gallerí Sykri heitir Védís Alma Jónsdóttir. Hún er aðeins nítján ára og er þetta hennar fyrsta sýning. Teikningar hennar eru flestar unnar með blýanti eða penna og verða til áreynslulaust. Hún skissar ekki, heldur kemur hugmyndin fullmótuð niður á blað. Litir eru notaðir sparlega, helst til að ná fram hughrifum eða til að undirstrika sjálfa teikninguna.
Hingað til hefur Védís helst verið að teikna fyrir sjálfa sig á venjuleg A4 blöð og hefur ekki sótt sér neina menntun í faginu. Ljóst er að hér er hins vegar um náttúrutalent að ræða og með smávegis hvatningu setti hún upp metnaðarfulla sýningu í Molanum. Sýning hennar í Gallerí Sykri stendur til 16. júní og eru allir hvattir til að kíkja við.
Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis!


Twitter
Facebook
RSS straumur
Engar athugasemdir