Molinn á Kópavogsdögum 2010



Kópavogsbær efndi til árlegrar bæjarlistahátíðar á dögunum þar sem menningarstofnanir kynntu starfsemi sína og buðu bæjarbúa og aðra gesti velkomna. Var dagskráin glæsileg og stóð fólki til boða að sækja yfir 200 viðburði. Í ár voru Kópavogsdagar tileinkaðir listamanninum Sigfúsi Halldórssyni en hann var afkastamikill á sviðum myndlistar og tónlistar.

Dagskrá Molans á Kópavogsdögum var fjölbreytt og skemmtileg. Föstudaginn 14. maí var haldið menningarpartý þar sem þemað var franskt og bakkelsið heimalagað. Valgerður Ýr Magnúsdóttir, nemi, sá alfarið um veitingarnar en hún er að safna sér fyrir námi í lýðháskóla í Noregi. Tilvonandi starfsmenn Skapandi sumarstarfa mættu á svæðið og voru boðnir sérstaklega velkomnir ásamt því að Linda Udengård opnaði myndlistarsýningu í Gallerí Sykri.

Laugardaginn 15. maí var haldið svokallað Molaport í Molanum. Það er markaður sem Ungliðahreyfing Rótarý hefur staðið fyrir undanfarin tvö ár. Þar var að kenna ýmissa grasa og gat fólk nælt sér í alls konar varning á vægu verði, gætt sér á veitingum og hlustað á lifandi tónlist. Byrjað var á því að heiðra listamanninn Sigfús Halldórsson með tónleikum undir yfirskriftinni: “Hvernig heyrir unga fólkið Fúsa?”. Ungt og upprennandi tónlistarfólk úr Kópavogi steig á stokk og lék helstu dægurperlur Sigfúsar. Þess ber að nefna að þau nutu leiðsagnar Björns Thoroddsen, eins fremsta gítarleikara landsins. Tónleikarnir voru afar vel heppnaðir og framtakið lofað með dynjandi lófataki gesta. Ungir tónlistarmenn héldu áfram að eiga sviðið og fram komu meðal annars hljómsveitin Tímaþjófarnir, Andra-tríóið, Quasi-kvartettinn, ungar blússöngkonur úr FÍH og fleiri.

 
 
 

Engar athugasemdir

Skildu eftir skilaboð





 

Molinn er allstaðar á netinu

Molinn á Facebook Molinn á YouTube Molinn á Twitter