Tags

Related Posts

Share This

Molaportið og Fúsa-verkefnið

Laugardaginn 15. maí var haldið svokallað Molaport í Molanum. Það er markaður sem Ungliðahreyfing Rótarý hefur staðið fyrir undanfarin tvö ár. Þar var að kenna ýmissa grasa og gat fólk nælt sér í alls konar varning á vægu verði, gætt sér á veitingum og hlustað á lifandi tónlist.

Byrjað var á því að heiðra listamanninn Sigfús Halldórsson með tónleikum undir yfirskriftinni: “Hvernig heyrir unga fólkið Fúsa?”. Ungt og upprennandi tónlistarfólk úr Kópavogi steig á stokk og lék helstu dægurperlur Sigfúsar. Þess ber að nefna að þau nutu leiðsagnar Björns Thoroddsen, eins fremsta gítarleikara landsins. Tónleikarnir voru afar vel heppnaðir og framtakið lofað með dynjandi lófataki gesta. Ungir tónlistarmenn héldu áfram að eiga sviðið og fram komu meðal annars hljómsveitin Tímaþjófarnir, Andra-tríóið, Quasi-kvartettinn, ungar blússöngkonur úr FÍH og fleiri.