Tags

Related Posts

Share This

Menningarhátíð í Kópavogi!

Kynntu þér dagskrá Kópavogsdaga með því að smella hér!

Árleg menningarhátíð Kópavogsbæjar hófst í gær með opnun sýningarinnar “Fúsi á ýmsa vegu” í Tónlistarsafni Íslands. Sýningin er tileinkuð Sigfúsi Halldórssyni en hann var afkastamikill listamaður og tónskáld og samdi margar af þekktustu dægurlagaperlum íslenskrar tónlistar eins og  Vegir liggja til allra átta og Lítill fugl.

Sigfús bjó lengi í Kópavogi og fyrir framlag sitt til listarinnar hlaut hann nafnbótina heiðurslistamaður og var seinna útnefndur heiðursborgari Kópavogs. Sýningin er unnin í samvinnu við afkomendur Sigfúsar og á Tónlistarsafninu má meðal annars sjá ýmsa persónulega muni hans, s.s. bréf og myndir.

Molinn hvetur unga sem aldna til að fá sér göngutúr um menningarstofnanirnar hér á holtinu og kynna sér dagskrá hátíðarinnar en í boði eru hátt í 200 menningarviðburðir.

Molinn er með opið frá 10-22 út vikuna vegna námsversins en því lýkur á föstudaginn. Sérstakir dagskrárliðir vegna Kópavogsdaga eru eftirfarandi:

FÖSTUDAGURINN 14. maí:

Molinn, mais oui! frá kl. 20-23. Frönsk stemning á föstudagskvöldi. Myndlist, tónlist, unglist! Opnun á sýningu Védísar í Gallerí Sykri. Heimalagaðar pönnukökur og þverröndótt þema. Kaffið verður brakandi gott, rjóminn silkimjúkur og pönnukökurnar heimalagaðar. Gríptu tækifærið og njóttu líðandi stundar – í Molanum.

LAUGARDAGURINN 15. maí:

Molaportið, frá kl. 13-17: Molaportið er árlegur viðburður þar sem öllum gefst tækifæri til að láta gott af sér leiða. Gefðu, keyptu, seldu, fáðu og sjáðu!

Unga fólkið og Fúsi, frá kl. 14-16: ungt tónlistarfólk úr Kópavogi leikur helstu tónlistarperlur Sigfúsar Halldórssonar undir handleiðslu Björns Thoroddsen gítarleikara. Mættu í Molann og leyfðu listinni að gleðja augu þín og eyru!

Verið velkomin!