Tags
Related Posts
Share This
Ramses og félagar í Molanum
Hingað til hefur Molinn látið lítið að sér kveða í rappsenunni og hafa metalböndin setið ein að kjötkötlunum. En það er allt að breytast. Molinn hélt debjút-tónleika í gær þar sem rappið fékk að njóta sín í fyrsta sinn á sviðinu. Rappkúltúrinn hefur ætíð blómstrað í Kópavoginum og rímurnar flætt beggja vegna Hamraborgarinnar og nú er ekki aftur snúið fyrir Molann. Ljóst er að lókalinn hentar feikivel fyrir rappara sem vilja að boðskapurinn komist til skila því nálægðin við áhorfendur er mikil og bassinn kröftugur.
Ramses mætti ferskur ásamt BRR, DJ Ace, Orra Err og JeyBí, sem steig fyrstur á svið. BRR tók 3 lög en hápunktur kvöldsins var þegar Ramses mætti á svæðið enda með mjög þétt efni. Endilega tékkiði á honum á youtube, þar er að finna lög eins og Kinkaðu kolli og Ég er hiphop en Ramses er sjálfur að mixa.





