Tags

Related Posts

Share This

Skapandi Sumarstörf 2010 -Nú er hægt að sækja um!


Hópum og einstaklingum á aldrinum 17-25 ára býðst að starfa við eigin skapandi verkefni í Kópavogi.
Krafist er skriflegrar umsóknar. Umsóknum um Skapandi Sumarstörf skal skila skriflega í Molann, Hábraut 2, 200 Kópavogi, merktum „Skapandi sumarstörf“ en auk þess þarf að sækja um rafrænt á sérstökum umsóknarvef bæjarins sem opnaður verður bráðlega.

Skila þarf inn umsókn þar sem fram koma eftirfarandi upplýsingar:
• Greinargóð lýsing á verkefninu, umfangi þess og markmiðum.
• Tíma- og verkáætlun verkefnisins.
• Fjárhagsáætlun.
• Upplýsingar um alla aðstandendur verkefnisins og tilgreindur einn tengiliður verkefnisins.

Hæfniskröfur
Umsækjendur þurfa að vera á aldrinum 17-25 ára og hafa lögheimili í Kópavogi.
Við val á verkefnum verður meðal annars tekið tillit til raunhæfni og frumleika verkefnisins, fjárhagsáætlun, fjölbreytni verkefna, kynjahlutfalli umsækjenda og gæði umsókna.

Nánari upplýsingar veitir Andri Lefever í símum 570 1646 / 840 2609 eða í tölvupósti, andri@molinn.is.